Míla er lífæð samskipta.

Míla hefur gert samstarfssamning við Knattspyrnufélagið ÍA á Akranesi til þriggja ára. Eva Magnúsdóttir forstöðumaður Sölu hjá Mílu og Þórður Guðjónsson framkvæmdastjóri ÍA undirrituðu samninginn á dögunum. Knattspyrnufélagið ÍA er í mikilli uppsiglingu og leikur meistaraflokkur karla nú aftur á meðal þeirra bestu eftir 3ja ára fjarveru úr Pepsideildinni.
Ísland er eitt netvæddasta land í heimi og ekki algengt að íbúar annarra landi hafi aðgang að jafn hröðum tengingum og við Íslendingar. Nú þegar hafa um 70% heimila á höfðuborgarsvæðinu möguleika á aðgengi að háhraðaneti Mílu og ekki verið þörf á að grafa upp heilu hverfin til að veita þennan aðgang.
Vefmyndavélar Mílu hafa nú verið í loftinu frá því gosið hófst á Fimmvörðuhálsi 2010. Hellingur er til af myndum s.s. frá eldgosunum og líka frá gamlárskvöldi og hafa starfsmenn nú sett saman myndskeið "timelaps" sem sýnir myndir af eldgosunum og einnig frá síðasta gamlárskvöldi og sett á Youtube.
Yfir 200.000 nýttu sér vefmyndavélar Mílu til að fylgjast með flugeldasýningu Íslendinga á gamlárskvöld. Míla setti upp vefmyndavélar fyrir áramótin til þess að streyma beint frá áramótunum en vélar voru settar upp í Reykjavík og á Akureyri. Heimsóknir voru víðs vegar að úr heiminum, flestar frá Evrópu og Bandaríkjunum.
Hin síðari ár hafa kröfur um meiri hraða og aukna bandbreidd farið sífellt vaxandi og hafa fjarskiptafyrirtækin, sem eru viðskiptavinir Mílu kallað eftir aðgengi að bandbreiðari samböndum. Í því skyni að mæta þessum kröfum hefur Míla um nokkurt skeið unnið að því að uppfæra fjarskiptakerfi sín til samræmis við óskir viðskiptavina. “Búið er að setja upp búnað sem nýtir fjárfestingar Mílu og uppfærir núverandi kerfi og tengir þannig mörg þúsund notendur í ýmsum hverfum við háhraða net. Nú þegar eru mörg svæði í höfuðborginni tengd ljósneti í gegnum þessa lausn. Þessir notendur hafa aðgengi að háhraða Interneti með allt að 50 Mb/s hraða.