Míla er lífæð samskipta.

Nýlega voru settir upp ökuritar í bifreiðaflota Mílu og voru þeir formlega teknir í notkun 1. október sl. Meginhlutverk ökuritanna er að gera Mílu kleift að fylgjast með aksturslagi og ferðum bifreiða sinna. Ökuritarnir gegna einnig mikilvægu hlutverki sem öryggis- og þjónustutæki.
Umfangsmiklar aðgerðir fóru fram á vegum Mílu ehf á Vestfjörðum í vikunni. Um fjórar stórar aðgerðir var að ræða og voru alls 18 starfsmenn í einu að störfum frá fyrirtækinu í þessum aðgerðum. Fyrst er að nefna viðgerð á bilun á ljósleiðara á sunnanverðum Vestfjörðum, færslu á streng sem lá undir skemmdum vegna ágangs sjávar, færslu á öðrum streng vegna vinnu við malarnámu rétt við Patrekstfjörð og að síðustu lokafrágangur og framkvæmd vegna aukningar á flutningsgetu til Vestfjarða.
Í byrjun september sameinaðist starfssemi Mílu á höfuðborgarsvæðinu öll á einn stað, þegar starfsmenn sem voru til húsa í starfsstöðvum Símans við Suðurlandsbraut fluttu í nýtt og glæsilegt starfsumhverfi að Stórhöfða. Fullyrða má að sannkölluð gleði ríki meðal starfsmanna Mílu á höfuðborgarsvæðinu yfir því að vera allir saman á einum stað. Þjónusta og samskipti við viðskiptavini kemur til með að eflast til muna og verða skilvirkari fyrir vikið.
Fjarskiptafyrirtækið Icecell hefur gert samning við Mílu ehf. um hýsingu á búnaði. Skrifað var undir samning þess efnis á milli fyrirtækjanna í dag. Icecell fékk nýlega úthlutaðri tíðniheimild vegna rekstur á GSM kerfi frá Póst og fjarskiptastofnun og fyrirhugar að að hefja rekstur þjónustu sinnar um næstu áramót. Icecell er að hefja vinnu við uppsetningu á sendum og öðrum búnaði og mun Míla útvega þeim hýsingu í sínum símstöðvum.
Fjórir ungir og efnilegir keppendur taka þátt í heimsmeistaramótinu í fimleikum sem haldið er í Stuttgart 26 ágúst 10 september. Míla ehf. er aðalstyrktaraðili landssliðssins í fimleikum árið 2007 og var skrifað undir samstarfssamning þess efnis 23. ágúst sl.