Míla er lífæð samskipta.

Talsverðan gufustrók leggur nú frá eldstöðinni í Eyjafjallajökli en hann leggur frá gígnum, þar sem stöðuvatn hefur myndast. Mjög stillt veður er á suðurlandi og sést strókurinn því sérlega vel. Hægt er að skoða gosstöðvarnar á vefmyndavélum Mílu á Hvolsvelli og Þórólfsfelli á vefsíðunni eldgos.mila.is
Í hádeginu í dag fór fram blaðamannafundur á vegum HSÍ á Hótel Loftleiðum þar sem verkefni A-landsliðs kvenna í næstu viku voru kynnt. Einnig var skrifað undir samstarfssamning Mílu og HSÍ og mun Míla verða einn af aðalstyrktaraðilum kvennalandsliðs HSÍ, ásamt Póstinum og Lyfju. Það er HSÍ mikið gleðiefni að hefja samstarf við Mílu.
Nú hafa komið um 4 milljónir heimsókna á heimasíðu Mílu til að fylgjast með gosinu frá því Míla setti upp fyrstu myndavélarnar á gossvæðinu. Heimsóknirnar koma frá löndum frá öllum heimsálfum og eru aðeins 4 lönd/landsvæði eftir sem ekki hafa enn nýtt sér myndavélar Mílu, Norður-Kórea, Sómalía, Svalbarði/Jan Mayen og Vestur-Sahara.
Sem dæmi um þá athygli sem myndavélarnar hafa vakið, þá hafði fréttastofa CNN samband við Mílu í dag, þar sem farið var á leit við fyrirtækið að fá aðgengi að vefmyndavélunum til að geta sýnt beint frá gosstöðvunum á Íslandi á fréttavef CNN. Það leyfi var veitt og er nú myndavélin sem staðsett er á Valahnúk aðgengileg á fréttavef CNN.
Neyðarstjórn Mílu hefur fylgst með ástandinu á gosinu í Eyjafjallajökli í allan dag. Í morgun hækkaði Míla viðbúnaðarstig sitt í hættustig. Míla hefur undirbúið sig og varið þau sambönd viðskiptavina sinna sem mögulegt er. Einnig hefur Míla undirbúið uppsetningu frekari varasambanda á svæðinu. Engar raskanir hafa ennþá orðið á fjarskiptakerfi Mílu en Míla hefur farið þess á leit við verktaka um allt land að þeir rjúfi ekki jörð í nánd við ljósleiðarahringinn nema að höfðu samráði við Mílu. Míla mun halda áfram að vakta ástandið.