29. júní 2015

Vestfirðir hringtengdir

Samningur um hringtengingu ljósleiðara

Míla og fjarskiptasjóður, fyrir hönd innanríkisráðuneytisins undirrituðu samning um fyrri hluta hringtengingar ljósleiðara um Vestfirði, þann 25. júní síðastliðinn.

Míla og fjarskiptasjóður, fyrir hönd innanríkisráðuneytisins undirrituðu samning um fyrri hluta hringtengingar ljósleiðara um Vestfirði, þann 25. júní síðastliðinn. Sú leið sem ljósleiðarinn verður lagður í þessum verkhluta er frá Stað í Hrútafirði til Hólmavíkur og er leiðin um 114 kílómetra löng.  Seinni verkhluti verður á milli Nauteyrar í botni Ísafjarðardjúps og Súðavíkur, en sá hluti verður boðinn út síðar.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra, Arnbjörg Sveindóttir formaður stjórnar fjarskiptasjóðs og Jón R. Kristjánsson framkvæmdastjóri Mílu undirrituðu samninginn. 

Frá undirritun samningsins

Um er að ræða ljósleiðarastofnstreng með möguleika á ljósleiðaraheimtaugum á leið strengsins, en heimtaugar eru þó ekki hluti þessa samnings. Undirbúningur er hafinn hjá Mílu og verður Orkubú Vestfjarða samstarfsaðili Mílu í verkefninu og mun Orkubúið samnýta jarðvinnuframkvæmdir fyrir lagningu rafstrengs. Vinna mun hefjast nú í júlí og er stefnt að því að klára verkið fyrir lok þessa árs.

Í byrjun árs ákvað Fjarskiptasjóður að styrkja framkvæmdir vegna lagningar ljósleiðara á Vestfjörðum með það að meginmarkmiði að efla fjarskiptaöryggi á svæðinu. Opið útboð vegna verkefnisins fór fram hjá Ríkiskaupum fyrr á þessu ári og var opnun tilboða í lok apríl. Þrír aðilar sendu inn tilboð og varð tilboð Mílu fyrir valinu.

Míla ehf. byggir á yfir 100 ára reynslu af lagningu fjarskiptakerfa. Fyrirtækið á og rekur víðtækt koparkerfi, ljósleiðara- og örbylgjukerfi sem nær til allra heimila, fyrirtækja og stofnana á landinu og er Míla undirstaða fjarskiptaþjónustu um allt land.