Míla hefur yfir að ráða öflugu og fjölþættu aðgangsneti að fjarskiptanetinu.

Ljósleiðarastrengir í sjó liggja yfir firði, víkur og voga og stytta þannig leiðina milli byggðakjarna. Stundum eru þessir strengir nefndir innfjarðastrengir en þá er einnig átt við strengi sem eru ekki ljósleiðarar. Mikilvægt er að að kannast við þær yfirborðsmerkingar sem vísa á legu og staðsetningu strengja. Stefnumerki vísa til landtöku sæstrengja og legu þeirra í sjó.
Danice strengurinn ltengir Ísland við Evrópu en strengurinn liggur frá Íslandi og kemur á land í Danmörku
CANTAT3 strengurinn tengir Vestur-Evrópu við Norður-Ameríku og liggur þvert yfir Norður-Atlantsshaf á milli Íslands og Færeyja.
Farice strengurinn tengir Ísland við Evrópu með tengingu við Færeyjar og Skotland.
Greenland Connect liggur frá Íslandi, til Grænlands og þaðan til Kanada.
Tjón sem verður vegna rofins ljósleiðara hvort sem er á landi eða í sjó getur numið milljónum króna og er á ábyrgð þess sem veldur því. Komast má hjá óþarfa tjóni og töfum með því að afla réttra upplýsinga í tíma. Það getur riðið baggamuninn um hvort framkvæmdir takist vel og standist áætlanir. Vakin er athygli á að samkvæmt lögum um fjarskipti er óheimilt að veiða með botnveiðafærum nær sæstreng en sem nemur fjórðung úr mílu frá miðju sæstrengs í báðar áttir, eða alls tveimur mílufjórðungum, eða 926 m. Nánair upplýsingar má finna á heimasíðu Farice.
Hringja má í síma 585 6221 á skrifstofutíma en 585 6400 utan þess tíma og fá allar upplýsingar um staðsetningu strengja.