Míla hefur yfir að ráða öflugu og fjölþættu aðgangsneti að fjarskiptanetinu.

CANTAT3-kerfið var tekið í notkun á árinu 1994 og bætir það gæði og fjölda talsímarása til útlanda. Strengurinn er 7788 km langur og tengir saman Kanada, Ísland, Færeyjar, England, Danmörku og Þýskaland.
Í strengnum eru sex ljósþræðir (þrjú pör) og eru á honum 89 magnarastöðvar með 80-90 km millibili og eru þær spennufæddar með allt að 9000 volta jafnspennu. Kerfið er byggt upp þannig að tvö af ljósleiðarapörunum eru í notkun og eitt er til vara. Hvert ljósleiðarapar getur annað rúmlega 30000 talsímarásum.