Þjónusta

Míla hefur yfir að ráða öflugu og fjölþættu aðgangsneti að fjarskiptanetinu.

Landstrengir

Ljósleiðarastrengir á landi tengja byggðakjarna saman og eru grafnir í jörðu
Helsta auðkenni ljósleiðara í jörðu er svonefndur merkjahæll - gulur staur merktur: VARÚÐ LJÓSLEIÐARI.

Tjón vegna skorts á upplýsingum
Tjón sem verður vegna rofins ljósleiðara hvort sem er á landi eða í sjó getur numið milljónum króna og er á ábyrgð þess sem veldur því. Komast má hjá óþarfa tjóni og töfum með því að afla réttra upplýsinga í tíma. Það getur riðið baggamuninn um hvort framkvæmdir takist vel og standist áætlanir.

Öflun upplýsinga
Ef farið er inn á svæði þar sem strengir kunna að liggja ber hiklaust að leita eftir upplýsingum hjá Mílu um nánari legu þeirra svo komast megi hjá óþarfa tjóni og töf á framkvæmdum. Hringja má í síma 585 6221 á skrifstofutíma en 585 6400 utan þess tíma og fá allar upplýsingar um staðsetningu strengja. Einnig má senda tölvupóst á netfangið teiknistofa@mila.is.

Þá er ekki síður mikilvægt að kannast við þær yfirborðsmerkingar sem vísa á legu og staðsetningu strengja.

Míla veitir verkfræðingum, tæknifræðingum og öðrum hönnuðum alla þjónustu og upplýsingar þeim að kostnaðarlausu og við teljum það ekki eftir okkur að koma á staðinn ef þörf krefur.



Stuðningsleiðarkerfi