Stofnnet

Stofnnet Mílu nær til allra þéttbýliskjarna landssins.

Örbylgjusambönd

Örbylgjusambönd eru þráðlaus sambönd í stofnneti og aðgangsneti Mílu. Örbylgjusambönd eru mikið notuð þegar þarf að koma sambandi á staði þar sem hvorki ljósleiðari eða kopar er til staðar. Samböndin flytja ýmist rásaskipta umferð, eins og leigulínur, eða pakkaskipta umferð, eins og ethernet. 

Gagnaflutningur á Örbylgjusamböndum er frá  einum stað til annars, t.d frá símstöð eða tækjarými, þar sem viðeigandi búnaður er til staðar. 

  • Örbylgja er þráðlaust fjarskiptasamband á milli staða
  • Viðkomandi staður þarf að vera í sjónlínu við næsta stað með búnaði fyrir örbylgjusambönd
  • Vegalengd má ekki vera of mikil að næsta stað með búnaði fyfir örbylgjusambönd
  • Flutningsgeta örbylgju getur verið allt frá einni talsímarás upp í 10 x 155 Mb/s
  • Örbylgjur eru á mismunandi tíðnisviðum
  • Örbylgjur henta vel þar sem lagnir í jörð eru ekki mögulegar, eða of dýrar 

Hámarksflutningsgeta örbylgjusambanda er 622 Mb/s en lágmarksflutnigsgeta þeirra er 2 Mb/s. Úthluta þarf tíðni frá Póst og fjarskiptastofnun fyrir hverja og eina örbylgju sem sett er upp.

Verð

Verð fyrir örbylgjusambönd eru háð tilboðum.




Stuðningsleiðarkerfi