Stofnnet Mílu nær til allra þéttbýliskjarna landssins.

Ethernet eru sítengd stafræn sambönd í kerfi Mílu. Hægt er að velja gagnahraða í 2 Mb/s skrefum upp í 100 Mb/s. Varan afhendist sem "stað í stað" samhæft samband til flutnings á gögnum. Gagnaflutningur á Etherneti er með tryggðri bandbreidd. Gæðastaðlar eru þeir sömu og fyrir hefðbundnar leigulínur. Sömu tengiskilin eru í endabúnaði frá 2 upp í 100 Mb/s.
Ethernetsambönd eru sítengd sambönd og er um pakkaskipt samskipti að ræða. Mögulegt er að auka eða minnka bandbreidd Ethernetsambanda eftir þörfum.
Dæmigerð notkun á Ethernetsamböndum er eftirfarandi:
Greiða þarf fyrir línu frá notanda að næstu símstöð. Verð frá nettengipunkti að næstu símstöð er byggt á verði fyrir ljóslínu.
| Afgreiðslugj. | Mánaðargjald | Km.verð pr.mán | |
|---|---|---|---|
| 2 Mb/s | 10.000 kr. | 12.152 kr. | 299 kr. |
| 4 Mb/s | 10.000 kr. | 25.443 kr. | 443 kr. |
| 6 Mb/s | 10.000 kr. | 31.140 kr. | 540 kr. |
| 8 Mb/s | 10.000 kr. | 36.836 kr. | 615 kr. |
| 10 Mb/s | 10.000 kr. | 42.533 kr. | 677 kr. |
| 20 Mb/s | 10.000 kr. | 69.876 kr. | 892 kr. |
| 48 Mb/s | 10.000 kr. | 86.888 kr. | 1.223 kr. |
| 100 Mb/s | 10.000 kr. | 103.292 kr. | 1.561 kr. |
Leiga á öðrum hraða byggir á tilboðum.
Lína frá notanda að næstu símstöð
Verð frá nettengipunkti að næstu símstöð byggir á verði fyrir ljóslínu sbr. kafla V.
Míla gefur tilboð í verð fyrir búnað og/eða uppsetningu á honum.
Flutningur sambanda á milli staða
Verð fyrir flutning á samböndum á milli staða byggir á kostnaði í hverju tilfelli fyrir sig.
Breyting á flutningsgetu
Við breytingu á gagnaflutningshraða er greitt kr. 18.675.
Skammtímatengingar
Verð fyrir skammtímatengingar, þ.e. sambönd sem standa í allt að 3 mánuði byggjast á tilboðum.
Afturköllunargjald
Ef hætt er við leigu eftir að uppsetning er hafin þá er innheimt afturköllunargjald.
Gjaldið er tvískipt:
Vinna við uppsetningu hafin..........10.972
Vinna við uppsetningu á endabúnaði hafin..........45.221
Verð er án virðisaukaskatts