Míla býður uppá Aðstöðuleigu í rúmlega 400 tækjarýmum víðsvegar um landið.

Hýsing í tækjahúsum er þjónusta sem Míla býður viðskiptavinum sínum. Um er að ræða aðgang að tækjahúsum fyrirtækisins sem og aðstöðu fyrir loftnet utan á húsum Mílu. Viðskiptavinum er úthlutað rými í eða utan á tækjahúsi, háð því hvort aðstaða sé fyrir hendi. Míla veitir ráðgjöf um uppsetningu loftneta og annars búnaðar.
Í gjaldskrá fyrir leigu í tækjahúsum úti á landsbyggðinni eru 3 verðflokkar eftir staðsetningu húsanna. Leiga á mánuði fyrir hverja einingu miðar við búnað sem er að grunnfleti 600x600mm (verð án VSK):
| Lýsing | Verð |
|---|---|
| I. Tækjahús, staðsett eru við eða mjög nálægt alfaraleið | 16.705 kr. |
| II. Tækjahús, hvorki á fjallatoppum eða við alfaraleið | 25.060 kr. |
| III. Tækjahús, eru á erfiðum stöðum m.t.t. aðkomu, aðgangs að rafmagni o.fl. (t.d. á fjallatoppum) | 33.410 kr. |
Miðað er við vísitölu byggingarkostnaðar fyrir janúar 2008 eða 377,9.
Verð er án virðisaukaskatts