Aðstöðuleiga

Míla býður uppá Aðstöðuleigu í rúmlega 400 tækjarýmum víðsvegar um landið.

Hýsing í símstöðvum

Hýsing í símstöð er þjónusta sem Míla býður viðskiptavinum sínum.  Þjónustan gerir viðskiptavinum Mílu kleift að koma upp búnaði sínum í símstöðvum Mílu, svo framarlega sem nægt húsrými er fyrir hendi. Þegar húsrými er ekki til staðar í húsnæði Mílu býðst viðskiptavinum aðstaða fyrir tengingu á milli eigin húsnæðis og tengigrindar Mílu og er þá um nágrennishýsingu að ræða.

  • Leigutaki greiðir fyrir lagnir frá sameiginlegum punkti, s.s. tengigrind eða rafmagnstöflu
  • Sama gildir um lagnaleiðir eins og kapalstiga eða lagnabakka sem þarf að setja upp
  • Rafmagn (230 V) afhendist einfasa með 16 A vara
  • Leigutaki getur samið við Mílu umaðgang að varaafli (diesel rafmagn), þar sem slíkt er fyrir hendi og tenging möguleg

Leiguverð á einingu

Í gjaldskrá fyrir Co – Location er boðið upp á tvö mismunandi verð eftir grunnfleti tækjaskáps (verð án VSK):

- 24.500 krónur / skáp  (miðað við 60smx60sm)
- 34.580 krónur / skáp  (miðað við 80smx80sm)

Miðað er við byggingarvísitölu janúar 2008 eða 377,9 stig.

Boðið er upp á afslætti vegna magns (x) og fjölda staða (y): 

Skilyrði Afsláttur
a) Ef x >= 2 10% afsláttur af báðum einingum
b) Ef x >= 6 20% afsláttur af öllum einingum
c) Ef x >= 10 30% afsláttur af öllum einingum
d) Ef x >= 25 og y >= 10 20% afsláttur af öllum einingum
Ef x >= 50 og y >= 25 30% afsláttur af öllum einingum

Skýringar: Liður a) - c), magn per stað.
Liður d) - e), magn per heild, t.d. fjöldi skápa jafn eða meiri en 25 fyrir alla staði og fjöldi staða a.m.k. 10.

Verð er án virðisaukaskatts




Stuðningsleiðarkerfi