Aðstöðuleiga

Míla býður uppá Aðstöðuleigu í rúmlega 400 tækjarýmum víðsvegar um landið

Aðstöðuleiga

Í tengslum við aðgang að heimtaug býður Míla fjarskiptafyrirtækjum að koma upp búnaði með hýsingu í símstöðvum og tækjarýmum Mílu svo framarlega að nægilegt húsrými sé til reiðu. Í því tilfelli að ekki er nægilegt húsrými og fjarskiptafyrirtæki þarf að útvega húsnæði í nágrenninu, er það Mílu óviðkomandi, nema hvað varðar aðstöðu fyrir tengingu (koparstrengi) milli húsnæðis fjarskiptafyrirtækis og tengigrindar Mílu.

Hýsing getur verið með tvennum hætti:  Þegar fjarskiptafyrirtæki kemur búnaði sínum fyrir í húsnæði Mílu; og nágrennishýsing þegar fjarskiptafyrirtæki kemur búnaði sínum fyrir í húsnæði í nágrenni símstöðvar.




Stuðningsleiðarkerfi