Aðgangsnet

Nærri öll heimili, fyrirtæki og stofnanir í landinu eru tengd Aðgangsneti Mílu

Aðgangsnet

Míla hefur yfir að ráða öflugu og fjölþættu aðgangsneti að fjarskiptanetinu. Aðgangsnetið byggir á koparlínum, ljósleiðurum og kóaxstrengjum. Koparlínukerfi Mílu er mjög víðtækt þar sem nærri öll heimili, fyrirtæki og stofnanir í landinu eru tengd kerfinu. Þegar um er að ræða tengingar til fyrirtækja, þá hefur ljósleiðari verið lagður í flestum þéttbýliskjörnum landsins til að tryggja viðskiptavinum háhraðaaðgang inn á ATM, IP-netið eða Internetið. Ljósleiðaranetið er byggt upp á svipaðan hátt og koparlínukerfið. Það byggir á ljósleiðara sem liggur frá símstöð í götuskáp og þaðan inn í hús er kóaxstrengur og/eða ljósleiðari. Í framtíðinni mun Míla eingöngu leggja ljósleiðara í ný hverfi í stað koparlína. 




Stuðningsleiðarkerfi